Arctic Spotfish

Okkar saga

Frá erfiðri tegund til raunhæfrar eldistegunar — og næsta tækifæri Íslands í kaldsjávareldi.

Efnileg tegund með þrálátu vandamáli

Tilraunir hófust í Noregi með hlýra sem eldisfisk árið 1996. Allar götur síðan hafa vandamálin verið þau sömu: hrognagæði, lágt frjóvgunarhlutfall og lág lifun í frumfóðrun seiða. Kanadamenn hafa glímt við tegundina frá árinu 2000 og á Íslandi gerði dótturfélag Síldarvinnslunnar hf, Hlýri ehf, tilraun til að ala hlýra árin 2001–2006. Því miður var tilrauninni hætt eftir að upp kom sýking af völdum Kudoa islandica.

Meðal efnilegustu nýju eldistegunanna

Í janúar 2020 kom út norska skýrslan Kunnskapsgrunnlag for nye arter i oppdrett, unnin af Akvaplan-niva. Ein af aðalniðurstöðunum er sú að hlýri sé sú tegund sem eigi hvað mesta möguleika á að verða eldistegund náinnar framtíðar í norsku eldisumhverfi — á undan lúðu, þorski, sandhverfu og bleikju, en á eftir hörpuskel.

Arctic Spotfish hefst, 2023

Árið 2023 hóf Arctic Spotfish ehf starfsemi, með styrk frá NORA. Þar sem enginn hlýri var til í landinu varð að safna fisknum frá hafi í samstarfi við útgerðir línubáta og togara. Fyrsti fiskur barst að landi í október 2023. Fiskurinn var fluttur í 3 metra hringker í rannsóknaraðstöðu Hafró að Stað við Grindavík, þar sem hann var vaninn á þurrfóður og fékk einnig loðnu og þorsk sem alinn var í stöðinni.

Árangur í hrygningu og klaki, 2024

Þann 9. nóvember 2024 hrygndi fyrsta hrygnan og einn hængur fannst með svil. Þegar seinni hrygnan hrygndi 16. nóvember var sami hængur tilbúinn. Frjóvgunarhlutfall á hrognum fyrri hrygnunnar var um 90% og 60% hjá þeirri seinni. Hrognin voru stór — 6,6 og 6,4 mm í þvermál — svipuð og hrogn laxa. Eftir að dauð hrogn höfðu verið fjarlægð klöktust þau eftir um 800 daggráður (fyrr en 900–950 sem oft er getið) og voru með svolítinn kviðpoka.

Frumfóðrun sem loks virkar

Nokkrum dögum eftir klak fékk fiskurinn lifandi fóður, artemiu í bland við þurrfóður. Af um 16.000 einstaklingum sem klöktust lifðu rúmlega 10.000 af startfóðrunina — yfir 60% í fyrstu tilraun. Þessi árangur byggði á þekkingu og reynslu innan Hafró af umhirðu og startfóðrun steinbítstegunda sem ekki hafði verið birt opinberlega. Til viðbótar hefur fiskurinn öflugt ónæmiskerfi; sjúkdómar eru fáir og dauði á eldistíma afar lítill, undir 1%. Það eru engar hindranir lengur í eldi á hlýra.

Styrkir og leiðin til Þorlákshafnar

Arctic Spotfish ehf hefur hlotið tvo styrki: frá NORA til að kanna möguleikann á að koma upp slíku eldi og fá þekkingaryfirfærslu frá Noregi, og frá Rannís til að kortleggja erfðaefni hlýrans til að undirbúa kynbótastarf. Félagið hefur uppi áætlanir um að byggja seiðastöð í Þorlákshöfn og hefur tryggt aðstöðu undir þá starfsemi.

Seiði hlýra í eldiskerjum Arctic Spotfish